Náðu sambandi við þinn innri mann við kjöraðstæður á Reykholti í Borgarfirði
Á Reykholti er að finna frábæra aðstöðu til að sinna andlegum málum á borð við yoga, slökun og almenna heilsueflingu.
Hótelið er skilgreint sem heilsuhótel (wellness hotel) og í boði er aðstaða í samræmi við það: Meðferðar- og slökunarherbergi, æfingasali, nudd aðstöðu, heita potta, að ógleymdri frábærri umgjörð náttúrunnar.
Okkar framtíðarsýn
Að hugur og hönd nái jafnvægi og eflist þannig að einstaklingurinn sem til okkar kemur finni orkusvið sitt aukast og öðlist kraft til að takast á við þau verkefni sem framundan eru. Þetta sjáum við gerast innra með hverjum og einum og einnig hjá hópum (vinnufélagar, vinir, æfingafélaga, o.s.frv.).
Fullkomin kyrrð er aldrei tilviljun, heldur náttúrulegt ferli sem yoga getur hjálpað til við að koma í kring.
Karma jóga er jóga aðgerða
Bhakta jóga er jóga tryggðar
Jnana jóga er jóga þekkingar
Iceland Yoga er jóga framtíðar þinnar
Við hverju er að búast?
Við bjóðum þér tækifæri til að dýpka vitund og vellíðan þína í kyngimagnaðri íslenskri náttúrufegurð.
Aðstaða, aðbúnaður og starfsfólk er reiðubúið að aðstoða ykkur hvort sem þið eruð á eigin vegum eða á skipulögðum helgarnámskeiðum okkar.
Jóga merkir “SAMEINING"
Við bjóðum sérstök tilboð fyrir hópa og getum útvegað leiðbeinendur sé þess óskað. Aðaláherslan er þó lögð á samstarf við leiðbeinendur, þjálfara og sérfræðinga, sem sjá sér hag í því að nýta aðstöðuna sem hluta af lengra ferli.



